Leita í fréttum mbl.is

Vandræði Sjálfstæðisflokksins

Ég er ekki sérstaklega hrifin af því þegar hinir og þessir eru að tjá sig um innanflokksmál stjórnmálaflokka. Það eru oft misgáfulegir kenningar og spunar sem koma út úr því sem eiga sér oft litla eða enga stoð í raunveruleikanum og eru klárlega settar fram í öðrum tilgangi en að halda uppi eðlilegri umræðu.

En... ég bara verð aðeins og velta upp nokkrum atriðum varðandi Sjálfstæðisflokkinn sem virðist eiga í töluverðum vandræðum þessa dagana. Sérstaklega vegna þess að yfirleitt eru spunameistarar Sjálfstæðisflokksins í dulargervi "fréttaskýrenda"duglegir að koma fram og reyna að hafa áhrif á pólitíska umræðu, augljóslega með hagsmuni síns flokks í fyrirrúmi en þó ekki sem yfirlýstir fulltrúar flokksins. Sérstaklega góð dæmi um það eru Andrés Magnússon og Agnes Bragadóttir... óþolandi alveg!

jardarforSvo virðist sem Sjálfstæðismenn í borginni hafi verið að undirbúa aðra aðför að oddvita sínum, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Hið margrómaða blaður um samstöðu er ótrúverðugt. Það sýnir sig alltaf betur og betur. Nú er greinilega í gangi fjölmiðlabann í þeirri krísu sem nú er uppi. Það næst ekki í neinn af borgarfulltrúunum og sjálfur formaður flokksins veit ekki hvernig hann á takast á við stöðuna. Þetta sama fólk var ekki spart á yfirlýsingarnar og stóru orðin hér í október þegar meirihluti BD sprakk vegna málefnalegs ágreinings og þeirri staðreynd að sjálfstæðismenn í borginni höfðu engan leiðtoga heldur marga litla smákónga sem hugsuðu sér gott til glóðarinnar (sjá mynd sem er ótrúlega lýsandi fyrir stöðuna).

Á meðan er opið skotleyfi á Villa. Menn verða að passa sig að ganga ekki of nærri einstaka persónum í hita leiksins og halda umræðunni á málefnalegum nótum. Þó hefur Vilhjálmur enn á ný gert ákveðin mistök í ferlinu, nú varðandi ummæli um umboð sitt í Kastljósinu og yfirlýsingu í kjölfarið sem triggeraði umræðuna um stöðu hans og ábyrgð. Þetta var frekar klaufalegt hjá reyndum stjórnmálamanni og hann hefði getað forðast þessa stöðu. Kannski hefði betur átt að setja fjölmiðlabannið fyrr í Valhöll!

Það verður athyglisvert að sjá hvernig Sjálfstæðismenn leysa úr sínum málum... ætli niðurstaðan verði sú sem menn óskuðu eftir þegar sexmenningarnir (eða fjórmenningarnir?) hófu vegferðina fyrir tæpum fjórum mánuðum?

Yfirleitt vona ég að mínu liði gangi vel en ekki að hinum gangi illa... kannski ég ætti að endurskoða það eitthvað því það er greinilega ekki almennur hugsunarháttur í þessu samfélagi. Því miður er öfund og niðurrifsstarfsemi mjög ríkjandi, þ.e. ef einhver er frambærilegur og gengur vel þá er viðkomandi ógn sem verður klekkja á... strax!

Hvernig væri ef þeir hinir sömu myndu bara leggja sig aðeins meira fram sjálfir í staðinn fyrir að einblína á að eyðileggja fyrir öðrum. Því miður er allt of algengt að fólk velji auðveldu leiðina, því oft er hreinlega ekki innistæða fyrir öðru hjá þessum sömu aðilum. Það væri ágætt að hafa þetta í huga þegar menn fylgjast með samfélagslegri umræðu og áður en þeir taka afstöðu byggða á misáreiðanlegum upplýsingum.


mbl.is Ekki ástæða til að ræða við Vilhjálm og Björn Inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband