Leita í fréttum mbl.is

Ónýt ríkisstjórn!

Það er óþolandi hvað þessi blessaða ríkisstjórn kemst upp með að gera ekki neitt nema gefa út ódýrar yfirlýsingar. Núverandi efnahagsástand er grafalvarlegt og afleiðingar þess munu koma í ljós á næstu vikum og mánuðum. Það hlýtur að vera betra að bregðast við núna en þegar ástandið hefur versnað enn frekar. 

Það liggur fyrir að gríðarlega sveiflur í gengi krónunnar eru að gera heimilum og fyrirtækjum í landinu erfitt fyrir. Krónan má sín lítils í alþjóðlegu fjármálaumhverfi. Við verðum að fara að hugsa alvarlega um mögulegar lausnir á þessu vanda. Óstöðugleiki í efnahagslífinu er vandamál sem verður að taka á.

Stjórnvöld eiga að skilgreina samningsmarkmið Íslands og hefja viðræður um mögulega aðild að Evrópusambandinu sem allra fyrst. Það þarf að láta reyna á hvort hagsmunum Íslendinga verði betur borgið innan sambandsins eða utan þess. 

Það er samt sem áður nokkuð ljóst að þessi ríkisstjórn mun ekki fara í þessa vinnu enda ekki á dagskrá, þrátt fyrir að Samfylkingin, "Evrópusinnarnir", séu þátttakendur í þessu stjórnarsamstarfi. Því er heppilegast fyrir þjóðina að taka af skarið og krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort eigi að fara í aðildarviðræður eða ekki.

Ríkisstjórnin mun ekki gera neitt nema almenningur refsi henni í næstu skoðanakönnun. Á meðan stjórnarflokkarnir, þá sérstaklega Samfylkingin sem er að mælast með sitt hæsta fylgi í langan tíma, rugga þeir ekki bátnum. Ekki gleyma því að þessi ríkisstjórn setti fram gríðarleg þenslufjárlög fyrir ekki svo löngu með tilheyrandi afleiðingum.

Nú er tími fyrir framsóknarmenn að rísa upp tala fyrir lausnum í þessu ástandi sem landsmenn eru á leið inn í.  Það er greinilegt að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eru ekki traustsins verð heldur bregðast í með öllu. Framsóknarmenn hafa ávallt og munu ávallt setja efnahagsmálin í fyrsta sæti. Atvinnuleysi, verðbólga og gjaldþrot er ekki það sem við viljum fyrir fólkið í landinu!

"Ekki gera ekki neitt"!

Jóhanna Hreiðarsdóttir
formaður Alfreðs og gjaldkeri SUF


mbl.is Vilja aðildarviðræður við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 19.3.2008 kl. 20:09

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband