Leita í fréttum mbl.is

Fundur já...

Tek undir þessar athugasemdir hjá íbúasamtökum Grafarvogs og Laugardals. Þetta er mjög stuttur fyrirvari á boðun fundarins. Spurning hvort eitthvað komi út úr þessu. Það er nokkuð ljóst að núverandi samgönguráðherra hefur ekki sérstakan áhuga á að Sundabraut verði að veruleika

Annað mál sem verður að minnast á er viðtalið við formann Samfylkingarinnar á Stöð 2 í kvöld þar sem hún setur ofan í við fréttastofu Stöðvar 2 og segir að hún sé ekki stjórmálaflokkur. Ótrúlegur hroki sem hún sýnir þar sem hlutverk fjölmiðla ER einmitt að veita stjórnvöldum aðhald. Ingibjörg Sólrún lofaði fyrir síðustu kosningar að kæmist Samfylkingin til valda myndi hún breyta lögum um eftirlaun ráðamanna þjóðarinnar snarlega. Það hlýtur að mega minna formann Samfylkingarinnar á það sem hún hefur lofað. Það mætti reyndar minna á fleiri mál því gleymskan virðist hrjá þau þessa dagana. En... það er óþægilegt og því má helst ekki tala um það!

Jú og eitt enn... hinn heiðarlegi borgarstjóri sem lætur verkin tala... hefur svo sannarlega gert það þegar hann ræður pólitískan samherja sinn á sérkjörum í Ráðhúsið... kjör sem ekki eru sambærileg því sem aðrir verkefnastjórar eru að fá. Síðan má segja að Jakob Frímann sitja beggja vegna borðsins því hann er líka formaður Hverfisráðs Miðborgar.

Skv. Vísi fær Jakob fyrir starf sitt sem framkvæmdarstjóri Miðborgar 474.000 krónur á mánuði. Einnig fær hann grædda fasta yfirvinnutíma sem eru 48 klukkustundir sem gerir um 236.000 á mánuði. 

Einnig má nefna að þetta starf var auglýst í tíð Tjarnarkvartettsins og um 20 manns sóttu um... hvað ætli þeim finnist núna þegar búið er að "týna" umsóknunum þeirra. 


mbl.is Opinn fundur um Sundabraut í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neytendavaktin

Skrapp í Hagkaup áðan til að redda nokkrum hlutum sem vantaði á heimilið. Í allri umræðunni um verðbólgu og verðlagseftirlit þá fylgdist ég nokkuð vel með því sem ég keypti og reyndi að velja ódýrustu vörutegundina hverju sinni. Síðan fór ég á kassann og borgaði... renndi síðan í fljótheitum yfir strimilinn og rak strax augun í nokkur misræmi milli kassaverðs og hilluverðs. 

Vörutegund   Hilluverð   Kassaverð   Mismunur
Vara 1               339                399               60
Vara 2               339                359               20
Vara 3               109                124               15
Vara 4               277                314               37
Vara 5               298                339               41

Það eru mjög ámælisverð vinnubrögð þegar af c.a. 20 vörum skulu 5 vörur vera rangt merktar til neytenda þar sem neytendur taka ákvörðun um kaup sín m.a. af merktu verði.

Mikilvægt er að almenningur fylgist vel með... þótt þetta séu ekki endilega stórar upphæðir þá er það prinsippmál að menn stundi heiðarlega viðskiptahætti.

Uppfært: Þar sem ég er prinsippmanneskja þá fór ég einn rúnt um búðina, skráði niður hilluverðin, lét kalla í verslunarstjórann, fékk mínar tæpu 200 kr. tilbaka og skammaði hann aðeins... Wink


mbl.is Yfirlýsing frá Heklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið til í þessu..

Eftir stúdentinn úr Verzló þá langaði mig að breyta til og fór í hárgreiðslunám í Iðnskólanum í Reykjavík. Fannst það bara ótrúlega skemmtilegt og fann mig vel í því. Á sama tíma tók ég líka nokkra áfanga í viðskiptafræði í Háskólanum með. Eftir tvær annir í verknáminu (sleppti auðvitað því bóklega því ég er stúdent) þá var komið að ákveðnum tímamótum... tæplega 1 ár á samningi. Vinna fullan vinnudag og fá rúmlega 60 þús í laun... og einmitt eins og Gabríela segir... litið niður á og misnotaða... því oft á tíðum eru nemarnir ekki þarna til að læra og verða færari í faginu, heldur sem ódýrt vinnuafl. 

Eins og oft hefur komið fram þá er viðhorf gagnvart iðnmenntun á ótrúlega lágu plani hérna heima. Það situr svo í mér einu sinni þegar ég átti leið í Kringluna þá stoppaði mig einn af þessum "catch-all" sölumönnum Kaupþings og vildi sko endilega fá mig í viðskipti og bauð hitt og þetta... þá var sem sagt ekki komin "kreppa" á fjármálamarkaði... en síðan spurði hann mig hvað ég væri að gera og ég sagði að ég væri í að læra hárgreiðslu... minntist ekkert á viðskiptafræðina enda bara nokkuð stolt af þessu... hann leit á mig með þvílíkum vanvirðingarsvip og kom því vel á framfæri hversu ömurlegt honum fannst þetta... ég gæti nú gert mikið betur. Ég labbaði bara í burtu en hef hunsaði þessa sölumenn og þetta fyrirtæki síðan.


mbl.is „Iðnnemar misnotaðir á vinnumarkaði"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræsni dagsins...

Ég skil ekki Samfylkinguna og stefnu þeirra í umhverfismálum. Hún kemst upp með að segja eitt og gera allt annað. Þetta toppar hins vegar alla vitleysuna... þótt ég sé yfirleitt hrifin af gjörningum sem sýna fram á point... þá fór þessi alveg framhjá...

Í fréttum RÚV í gærkvöldi: 

"Græna netið, umhverfisfélag Samfylkingarinnar, og ungir jafnaðarmenn nýttu daginn og gróðursettu sólberjarunna í Helguvík þar sem fyrirhugað er að reisa álver. Þau kölluðu plönturnar Þórunni og Össur og vildu með gjörðinni vekja athygli á öðrum atvinnumöguleikum á Suðurnesjum en álveri."

Hvar eru stóru orðin sem voru fyrir kosningar um að fresta öllum stóriðjuframkvæmdum... þeir gætu það nú bara víst! En núna þegar sama fólk situr í ríkisstjórn þá er ekkert hægt að gera... er ekki Þórunn umhverfisráðherra og Össur iðnaðarráðherra? Sorry... en þetta er ekkert annað en hræsni!


Pólitíkin í BNA


Flottur frontur!

Eyþór Ingi frá Dalvík sigraði í Bandinu hans Bubba... og er vel að því kominn enda ótrúlega flottur og frambærilegur strákur... til hamingju!

Mynd fengin að


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband