29.11.2007 | 12:32
Pæling
24.11.2007 | 19:33
Jólabókin í ár?
Við kíktum nokkur saman í Mál og menningu í gær að tilefni útgáfu nýrrar bókar Guðna Ágústssonar, formann Framsóknarflokksins. Þar var fjölmenni og mátti sjá nokkur þekkt andlit s.s. Alfreð Þorsteins, Össur, Magga Stefáns, Loga Bergmann, Kristinn Hrafnsson, Kötu Júl, Ragnheiði Elínu, Kolbrúnu Bergþórs o.fl. Það verður eflaust fróðlegt að kíkja í þessa um jólin...
24.10.2007 | 01:00
Flashback
Við vinkonurnar úr Verzló erum farnar að mæta galvaskar í blak núna alla þriðjudaga í íþróttahúsinu í Verzló. Já blak... það er sem sagt eins konar "þjóðaríþrótt" í Verzló! Ég man hvað okkur þótti þetta ótrúlega glatað þegar við byrjuðum, vildum helst alltaf fara bara í fótbolta! En það breyttist og fljótlega vildum við bara vera í blaki... kepptum á mótum innan skólans og hvaðeina.
En vá hvað er skrýtið að upplifa aftur framhaldsskólaárin. Bara það að labba inn í húsið, mæta starfsfólkinu og kennurunum sem maður by the way þekkir ennþá... þá rifjast ýmislegt upp! Fyndið hvað allt virðist vera samt svipað... þótt blakhæfileikarnir hafi reyndar aðeins farið minnkandi þessi þrjú ár sem við vorum í pásu
19.10.2007 | 00:02
Ég á ekki til orð...
... ef þetta er satt! Hvað á svona framkoma eiginlega að þýða? Ég trúi ekki að hinn almenni sjálfstæðismaður og þeir trúnaðarmenn sem boðaðir voru á þennan fund láti í alvörunni bjóða sér þetta!
Það er greinilegt að nú er björgunarherferð Sjálfstæðisflokksins farin í gang... a la Davíð! Það er ekkert að hjá okkur, þetta er allt öðrum að kenna og síðan er treyst á að allir haldi sér saman! Svona framferði hlýtur að dæma sig sjálft, sérstaklega miðað við öll stóru orðin sem þetta ágæta fólk hefur leyft sér að láta falla opinberlega um aðra aðila málsins... ÓTRÚLEGT!
18.10.2007 | 17:07
Óvissuferð
Við "beljurnar" fórum í ótrúlega skemmtilega óvissuferð um síðustu helgi. Við byrjuðum í brunch heima hjá Guðrúnu Ástu, síðan var farið í leiki í Laugardalnum, svo á skauta í Skautahöllinni og að lokum í magadans í Magadanshúsinu. Það var mjög skemmtilegt og við hlógum okkur máttlausar á meðan þessu stóð.
Eftir þetta allt saman skellti hópurinn sér í pottinn á Hótel Loftleiðum til að undirbúa sig fyrir kvöldið. Þangað kom svo rúta og fór með okkur heim til Ernu þar sem við borðuðum og skemmtum okkur fram eftir kvöldi. Anna Rut, Erna og Guðrún Ásta voru stóðu sig geðveikt vel í skipulagningunni... nú þurfum við Jana og Edda Lára að toppa þetta í næstu óvissuferðarnefnd. Takk stelpur fyrir brilliant dag! Hérna koma svo nokkrar myndir frá herlegheitunum...
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agnarbragi
- agnarb
- vestfirdingurinn
- safinn
- birkir
- dofri
- eyglohardar
- fannygudbjorg
- fufalfred
- gesturgudjonsson
- neytendatalsmadur
- mummiskula
- hallurmagg
- hl
- smalinn
- hlini
- jonfinnbogason
- jon-o-vilhjalmsson
- skjalfandi
- lafdin
- kristbjorg
- margretsverris
- suf
- siggi-hreins
- kaupfelag
- stefanbogi
- steinunnanna
- valdisig
- vefritid
Af mbl.is
Erlent
- Bert veldur miklu raski á Bretlandseyjum
- Einn handtekinn eftir að kona fannst látin
- Erdogan fagnar handtökuskipuninni
- Finnair aflýsir 300 flugferðum vegna verkfalla
- Pútín reynir allt til að forðast aðra herkvaðningu
- Fimm flugfélög sektuð fyrir óboðlega framkomu
- Útnefnir vogunarsjóðsstjóra í fjármálaráðuneytið
Viðskipti
- Fréttaskýring: Kanada verði land tækifæranna
- Þarf fólk að kaupa sér hraðbanka?
- Ellert nýr fjármálastjóri Merkjaklappar
- Adani ákærður fyrir mútur og svik
- Félagsbústaðir tapa án matsbreytinga
- Dana tekur yfir markaðsmál Lauf Cycles
- Kerecis-hjón fjárfesta í leiguflugi
- Vextir lækki um 175-200 punkta
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol